Want your
own Fotopage?








 
Fanney's FotoPage

By: Fanney Vesteinsdottir

[Recommend this Fotopage] | [Share this Fotopage] | [Track this Fotopage]
[<<  <  [1]  2  3  4  5  6  7  >  >>]    [Archive]
Friday, 14-Nov-2008 22:44 Email | Share | | Bookmark
Smá myndir

Helena að prófa nýjan stíl í IKEA:)
Fundum þessa fínustu skó!
Var eitthvað friðarþema þar sem öll minnismerkin eru...
Ég og þinghúsið
Ég á Íslandi:)
Fannst þessi stelpa bara svo krúttleg:)
Haha pappaspjald af Obama
Hvíta húsið
Young marines
View all 18 photos...
Ákvað að segja inn smá myndir frá því að Grjóni var í heimsókn og við fórum í skoðunarferð

Hæ Hæ fínustu myndir. Gaman að skoða kv Mamma Mon 24-Nov-2008 12:16
Posted by:gitta
http://www.salesuggsboots.com/white-ugg-classic-cardy-boots-p-189.html ugg classic cardy white
http://www.salesuggsboots.com/womens-ugg-classic-cardy-boots-rose-p-187.html rose ugg classic cardy



http://www.salesuggsboots.com/ugg-classic-short-c-4.html classic short uggs
Mon 26-Jul-2010 08:42
Posted by:toto5  - [Link]
Add comment


Tuesday, 21-Oct-2008 23:35 Email | Share | | Bookmark
21. október...

Ég allveg steinsofandi...
Ég og Grjónos í Mývó
Hverfjallið:)
Grímsstaðir
Heimsótti Guðmund Óskar
Og kínverjann Söndru mömmu hans:)
View all 8 photos...
Jæja þá er kominn 21. október og mér finnst það svona hálf skrítið...
Ég ætlaði bara að setja inn nokkrar myndir, bæði frá Íslandi og svo aðeins hérna úti. Er samt búin að vera hálf löt við að taka myndir en fer vonandi að bæta úr því
Hef ekki meira að segja í bili, en skrifa kannski eitthvað þegar mér dettur eitthvað í hug:)

hæ skvís. ég er á næturvakt og var að skoða myndirnar. gaman að geta fylgst svona með. kv mamma Tue 4-Nov-2008 02:50
Posted by:Gitta
nú er inga komin til eystlands og grjóni til þín á morgun. aldeilis ferðalögin á fólkinu Tue 4-Nov-2008 02:52
Posted by:Gitta
Hahaha gaman að þú ert búin að læra að skrifa hérna:) Þetta eru svo skemmtilegir kallar sem hægt er að setja inn:) Wed 5-Nov-2008 01:45
Posted by:Fanney
View all 4 comments Add comment


Sunday, 28-Sep-2008 03:04 Email | Share | | Bookmark
Rúmar 5 vikur í DC...

Tók eina mynd af Logan cicle, svona hringtorg/garður í DC..
Laumaðist til að taka mynd af þessum, allveg eins og bíómynd:)
 
View all 26 photos...
Jæja nú ætla ég að reyna að setja inn nokkrar nýjar myndir
Ég gerði svosem ekki margt í síðustu viku. Var að passa dáldið mikið en fór samt einusinni í mollið að versla smá Fer líka áfram í leikfimina og svona það sem mér dettur í hug bara. Fór líka í bíó með stelpunum síðustu helgi.
Annars er ég bara hálf undrandi yfir því að ég sé búin að vera hér í 5 vikur og sé að fara að koma heim í heimsókn eftir 5 daga!
Flestar myndirnar sem ég set inn eru reyndar síðan í dag. Ég fór til Baltimore með Verenu og Olgu sem eru báðar þýskar. Olga var á bíl svo við keyrðum bara og fórum að skoða sædýrasafnið Það var ekkert smá flott, þetta er sona National Aquarium svo það er allveg risa stórt! Sáum hákarla og alls konar fiska bara... og froska og höfrungasýningu sem ég gleymdi að taka myndir af... hehe
Svo fórum við líka í svona þrívíddar bíó þarna og það sprautaðist vatn þegar kom splass í myndinni og allt
Það kom reyndar allveg úrhellisrigning þegar við vorum á leiðinni aftur í bílinn eftir að hafa borðað og við vorum á endanum orðnar svo rennandi blautar að okkur var orðið allveg sama og fórum bara að taka myndir

Ég vona svo að ég nái að sjá sem flesta heima... ég læt líka vita af mér

Bless í bili!

Hey mundi allt í einu að þú varst farin að skrifa aftur hérna inn;) En greinilega ekkert nýlega.. verður að fara að bæta úr því! Hafðu það gott elskan:* Tue 21-Oct-2008 13:06
Posted by:Hildur:)
Add comment


Monday, 8-Sep-2008 19:43 Email | Share | | Bookmark
Nýjar myndir!

Ó Ameríka!
 
Bý í gráa við hliðina á hvíta sem er næst á myndinni:)
View all 31 photos...
Jæja hér koma nýjar myndir:)

Ég fór á laugardaginn með einni stelpu til Philadelphiu sem er borg svona 2 og hálfan tíma frá Washington. Hún er þekktust fyrir það að hafa verið höfuðborg Bandaríkjanna áður en það varð Washington... en svona fyrir þá lesendur sem ekki vita að þá er Washington DC höfuðborg Bandaríkjanna og er eitt af fylkjunum 50. Borgin er semsagt líka fylki:)
Í Philadelphiu var skrifað undir sjálfstæðisyfirlýsingin (held það sé rétt þýðing) svo í gamla bænum eru rosalega margar þekktar byggingar sem tengjast sjálfstæðisbaráttu og stjórnmáladóti Bandaríkjanna.

En annars er allt gott að frétta. Stelpan er með smá kvef núna og ég og mamma hennar erum ótrúlega vondar við hana. Eða það finnst henni afþví við reynum alltaf að snýta henni:) hehe

Ég skal reyna að kíkja oftar á commentin á þessari síðu Inga mín:) en annars nota ég líka e-mailið fanney_kr@hotmail.com.

Bæjó, Fanney!

Hvor er bilderne?? Mon 8-Sep-2008 21:26
Posted by:Inga Lísa
Engar áhyggjur... er að reyna að redda þessu:) Lenti í einhverju veseni þegar ég ætlaði að koma þeim inn.... ætla að reyna aftur núna og ef það virkar ekki þá geri ég eitthvað í þessu á morgunn Tue 9-Sep-2008 02:39
Posted by:Fanney
Hey skvís gaman að sjá að þú leggur eitthvað til málanna (og myndanna) á vefnum;) Annars bara að kommenta:p Wed 17-Sep-2008 18:02
Posted by:Hildur:)
Add comment


Saturday, 30-Aug-2008 02:38 Email | Share | | Bookmark
1. Vikan í DC

Þinghúsið... fór og skoðaði það:)
.... Nadja og Verena hjá þinghúsinu.
Nadja, Verena og .... á bekk á the Mall.
View all 10 photos...
Jæja þá er ég búin að vera viku í Washington DC.
Ég skelli nokkrum myndum hérna inn svona fyrir þá sem eru ekki með facebook:)

Það er búið að vera voða fínt hérna, eiginlega bara vonum framar...!
Er búin að skoða mig dáldið um hérna og búin að fara 2svar í ræktina í einhverskonar jóga tíma, samt ekki jóga heldur eitthvað svipað. Það er mjög fínt og ótrúlega erfitt:) hehe

Ég held samt ég hafi þetta ekki lengra í bili! Endilega kíkið á myndirnar... það er hægt að stækka þær með því að klikka á þær:) (smá leiðbeiningar fyrir mömmu)

Hæ ljúfust. Hvernig er lífið í Ameríku? Vona að þú hafir það gott. Ég sit eins og er í tíma í HA. Fer í skólann nokkurm sinnum yfir önnina eftir hádegi á föstudögum og svo allan laugardaginn! Pjúff...það er samt voða fínt, mun betra en að þurfa að mæta nokkrum sinnum í hverri viku. En hey veistu hvað, ég er að fara til Eistlands í einn kúrs frá 2-15 nóvember, mjög spennandi, virkilega spennandi kúrs.
Hafðu það nú gott snúllan mín
Knús
Sistah Sledge
Sat 6-Sep-2008 10:18
Posted by:Sistah sledge
Hæj...ertu til í að senda mér meilið hjá þér, langaði að skrifa þér en fattaði að ég veit ekkert póstinn hjá þér! Notaru hotmailið núna? Eða hvað? Ha? Hvað meinaru? Þú verður að kíkja á þessa síðu líka stundum:) Kannski hringi ég bara í þig á eftir, ekki núna því klukkan hjá þér er nótt. Mon 8-Sep-2008 09:27
Posted by:Sistah sledge

<A href="http://www.toptoys2trade.com/animal-rubber-bands-c-46/ ">Animal Shaped Rubber Bands</A>
<A href="http://www.toptoys2trade.com/baby-carriers-c-53/ ">Baby Carriers</A>
<A href="http://www.toptoys2trade.com/power-balance-wholesale-2-c-40/ "> power balance</A>
<A href="http://www.toptoys2trade.com/animal-rubber-bands-c-46/ "> Animal Rubber Bands</A>
Thu 29-Jul-2010 06:43
Posted by:Animal Shaped Rubber Bands  - [Link]
View all 4 comments Add comment


Thursday, 18-Oct-2007 14:51 Email | Share | | Bookmark
Elskurnar mínar:)

Þetta er með síðustu myndum sem ég tók:) ekki mjög dugleg:)
Hmm fyrst ég rak augun í nýtt komment í morgunn ákvað ég að tilkynna það að nú set ég myndirnar mínar inná myspaceið mitt... myspace.com/fanneykristin!
Hef nú ekki tekið myndir síðan í sumar eða eitthvað en ég fer að bæta úr þessu og set inn myndir og sona skemmtilegt
Nenni líka kannski að blogga aðeins þar og sona ef mér leiðist mikið
Hver veit samt nema ég lífgi þessa síðu við... hmm neee veit ekki, Sunna mín þú verður bara að fá þér myspace
Sjáumst síðar alle meina freunde

Add comment


Saturday, 17-Mar-2007 14:31 Email | Share | | Bookmark
Sjitt hvað ég er dugleg!:D

Vá hvað þær lýta út fyrir að skemmta sér vel;)
Æjj það er bannað að vera sona vondur:(
Hahahaha ógó mynd en jesús minn hvað hún er fyndin:)
View all 24 photos...
Jáhh veriði sæl... það mætti halda eitthvað hafi komið yfir mig...ég er bara orðin ofurdugleg að blogga.
Ligg nú bara uppí sófa og ekki allveg að nenna að standa upp... neyðist samt til eftir sona klukkutíma, maður þarf víst að vinna
En jáhh síðasta helgi fór í yndælis rugl. Átti að eiga fríhelgi en það endaði með vinnu mið, fim, fös og lau í brynju og svo sun á tikktakk hehe.
En ég lét það ekki buga mig og fór út með stelpunum á laugardagskvöldinu og er með allveg ljómandi skemmtilegar myndir frá því Byrjuðum heima hjá massanum og jáhh vorum allveg nett léttar á því og fórum og dönsuðum úr okkur líftóruna við undirleik baggalúts, hehe með sona jáhh 50+ í sjallanum.
Svo var ég nú bara í ritgerðavinnu og ömuleg heitum síðastliðna viku og var ekkert smá glöð að komast í helgarfrí... hehe þó ég hafi verið að vinna í gærkvöldi og sé að fara að vinna í kvöld og á morgunn
Kíkti eftir vinnu í gær á síðasta hálftímann á H&H... ljómandi góðir tónleikar þar á ferð og sumir ofurdyggir aðdáendur allveg að meika það hehe
Fórum svo í bæinn eftir það og jáhh sona hálf hrundum í það á Kaffi Ak og jáhh afhverju enda ég svona ótrúlega oft ein á djamminu með strákum??? skil þetta bara ekki
Langar samt kreisí mikið út eftir vinnu í kvöld, allveg spurning hvað maður gerir og hversu góða vini maður á
Ætla samt að henda inn myndum ykkur til skemmtunar og yndisauka og kveð því að sinni
Hasta luego!

hey félagi, ég er nú orðin svolítið þreytt á því að horfa á þennan fallega svip minn.... þó svo að ég sé með eindæmum myndarleg, þá er þetta nú frekar ómyndarlegt svona! Tue 15-May-2007 16:04
Posted by:Sandra
æi hún er bara í í sjokki eftir að tóta gaf frá sér búmmm Sun 20-May-2007 16:34
Posted by:Eysteinn
Er síðan dáin eða er hún dáin? Thu 18-Oct-2007 09:36
Posted by:Sunna
View all 12 comments Add comment


Tuesday, 6-Mar-2007 11:48 Email | Share | | Bookmark
Sjæse hvað ég er dugleg...:)

Mangi litli útí horni... ekki allveg sáttur við myndatöku:)
Nadine og Halli
Haha góð mynd... Gulla, Massinn og ég:)
View all 8 photos...
Jáhh kominn tími á að skella mánaðargömlum þorrablótsmyndunum inn, þær eru reyndar ekki margar en...
Bara farin að blogga oftar en 1 sinni á 2ja mánaða fresti ha! hehe
Annars voðalítið að frétta... hef ekkert gert síðustu 2 helgar sökum vinnu...
Anyways... var semst að vinna í brynju 11-17 á lau, tikktakk frá 2-6 og svo brynju aftur á sun frá 17-23. Kíkti nú aðeins í Sjallann til 2 á lau... og jesús minn ég var nú bara fegin að komast út þarna rétt fyrir 2.... Hefði örugglega troðist undir bara...!
En núna er ég bara að vera með í maganum yfir ritgerð sem ég á að skila á föstudag... las nú smá heimildir í gær og skrifaði út frá því inngang og gerði forsíðu hehe góð byrjun! Þarf annars bara að kíla á þetta næstu kvöld 6-8 bls um persaflóastríðið fyrra... þúst hvað er það???
En jáhh þokkalega djamm um helgina... stelpuhittingur á laugardag... klárlega
Þangað til næst bara Be cool... stay in school!!!

Hahaha jebbb.... close enough... Þýskan á hinu blogginu var samt að rokka sko!
Tue 6-Mar-2007 21:31
Posted by:Fanney
Hei vó ertu orðin þýsk eða?? Ég hef ekki talað við þig svo lengi ég er komin með fráhvarfseinkenni frá Fanneyjarspjalli.. ahahha
luuuv á þig;)
Sun 11-Mar-2007 12:50
Posted by:Hildur
vó bara tvö blogg á stuttum tíma....ég verð að fara að vera duglegri að heimsækja þig hingað inn . en já flottar myndir með báðum bloggum híhí..... get ekki beðið eftir að hitta þig eftir aðeins 15 daga jibbý sak´na þín ógó mikið og já ég er sko sammála Hildi að ég er komin með fráhvarfseinkenni frá þér elskan mín...........luv ya Wed 14-Mar-2007 16:28
Posted by:Gulla
View all 4 comments Add comment


Thursday, 1-Mar-2007 19:04 Email | Share | | Bookmark
Jáhh nú er ég hlessa..!

Sætu systkyni mín fyrir sona 2-3 árum:)
Hehe ég og pabbi:)
Inga á leið í ferðalag
View all 9 photos...
Jújú ég fór að spá í dag meðan ég fletti í gegnum séð og heyrt í vinnunni... Má birta myndir af Britney Spears á píkunni í blaði sem krakkar fletta??? Held þetta varði við lög svei mér þá!
En annars er lítið að frétta... er á barmi taugaáfalls útaf ritgerð sem á að skila á föstudaginn í næstu viku og ég er ekki byrjuð á, sérstaklega afþví ég veit ekkert um efnið og jáhh er að vinna bókstaflega alla helgina Veit einhver eitthvað um Persaflóastríðið fyrra??? Neihh hélt ekki
Ég er annars bara búin að vera að vinna og sofa og nee ég ætla ekkert að vera að ljúga neinu... ekki að læra... Ákvað fyrst ég er í mömmu og pabba tölvu að skella inn nokkrum myndum sem ég fann þar
Und für dich Nadine... wenn du Isländisch lernen sollst, möchtest du diesen Text in Isländisch lesen. Ich will den nicht in Englisch oder Deutsch schreiben und von hier will ich nur mit dich in Isländisch sprechen.
Njótið vel!

Vá hvað þið eruð vitlaus og fanney forvitna hehehe Mon 5-Mar-2007 22:13
Posted by:Eysteinn
vá hvað ég er forvitin! Tue 6-Mar-2007 00:06
Posted by:Sandra
Bwahahahaha ég ætla ekki að segja neinum... því allir verða að þjást eins og ég þurfti
Var reyndar frekar svekkt þegar ég fattaði ég vissi þetta hvorteðer fyrir en.....
Tue 6-Mar-2007 11:43
Posted by:Fanney
View all 5 comments Add comment


Monday, 22-Jan-2007 23:02 Email | Share | | Bookmark
If I go there will be trouble... if I stay it will be double;)

Haha ég og geggjað hættulegi bangsinn í Niagra falls;)
Vohohó! þvílíkur dare devil;)
Og ógeðslegasti burger í heimi! haha jább þetta er kjötfars!
Jeddúddamía ég á engar myndir handa ykkur því miður en ætli ég verði ekki að skella hérna inn smá færslu
Í fyrsta lagi... hvað er málið með fólk og að umturna lífi sínu útaf handbolta SEM ÞAÐ TEKUR EKKI EINUSINNI ÞÁTT Í SJÁLFT!!!! veit það er fullt af ykkur þarna úti og ég er örugglega ein um þessa skoðun en jesús minn almáttugur..! og setningin "Jess VIÐ unnum!" HALLÓ hvað þykist ÞÚ hafa gert í þessum leik??? Botna ekkert í þessum skrípalátum
En á daga mína hefur svosem ekki mikið drifið. Var ég kjörin meðstjórnandi Söndru í sjoppunni og er okkar fyrsta missioni að ljúka en jújú við fengum það verkefni að redda sjoppu á LAN móti í skólanum og erum við að redda pizzum og munum funda um vaktirnar á morgunn... en nóg um þetta!
Nú eru aðeins 126 dagar í Mexico og þar sem ekki er enn búið að ganga frá staðfestingagjaldinu er fólk endalaust að hætta við og bætast við og ég veit ekki hvað og hvað... hehe eða sona 3 manneskjur eða eitthvað en auðvitað gildir bara "the more the merrier"
Hmmm hvað meir... Þorrablót næstu helgi á laugardaginn semsagt Það verður að öllum líkindum hörkustuð og maður reynir nu kannski að hafa myndavélina með sér til að fólkið taki einhverjar myndir... hehe ég gleymi því strax eftir 1.
Og hei já ég er sko þokkalega að fara í strípur og "klippingu" á fimmtudaginn.. hehe er sko núna komin á það að safna hári sjáum hvernig það gengur þegar gellan býður mér einhverja heillandi klippingu
Held ég láti þetta nú bara nægja í bili kem bara næst með myndir af þorranum
Adios mi amigos
(Verð að setja með 3 myndir sem ég held að hafi vantað í Canada syrpuna )

BLLLLLOOOOOOOGGGGGGGGGGGGAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA KONA Fri 16-Feb-2007 20:30
Posted by:Gulla
Dónde están las nuevas informaciones y las fotografías???? Everybody is waiting!!!!!!!!!!!!!! Wed 28-Feb-2007 14:05
Posted by:Nadine
Las nuevas informaciones y las fotografías están en mi cabeza y mi cámara
I only have like 8 photos so i´m just gonna put some more in here after the party we´re gonna have the weekend Helga´s birthday is... ohh by the way... shouldn´t we have a party???
Thu 1-Mar-2007 14:02
Posted by:Fanney
View all 7 comments Add comment


[<<  <  [1]  2  3  4  5  6  7  >  >>]    [Archive]

© Pidgin Technologies Ltd. 2008.

web01.fp.pidgintech.com